Inngangur (ritstjórnarleg yfirskrift)

„Inngangur“ er ritstjórnarleg yfirskrift vefútgáfunnar en ekki prentuð fyrirsögn frumútgáfunnar.

Um fátækraframfærslu á síðmiðöldum og hrun hennar

Hér er fjallað um fátækraframfærslu á síðmiðöldum og þær stofnanir samfélagsins sem sinntu um sjúka, fátæka og munaðarlausa. Tekjustofnar þeirra eru skoðaðir og heimildir um fátækt kannaðar, en þær er helst að finna í Fornbréfasafni og Biskupa sögum. Þá eru mismunandi hópar fátæklinga athugaðir og dregin upp mynd af kjörum þeirra. Slík rannsókn veitir forvitnilegar upplýsingar um lífsbaráttu alþýðu manna á miðöldum. Þá er gerð grein fyrir siðbreytingunni og kirkjuordinansíu Kristjáns III, sem batt enda á félagsmálakerfi miðalda á Íslandi.

Vísast má skilgreina fátækt á ýmsa vegu en í íslensku miðaldasamhengi var sá maður fátækur sem ekki gat séð sér farborða, hvort sem var fyrir æsku eða elli sakir, vegna sjúkdóma eða skorts á framfærslugrundvelli, sem frá því á miðöldum og allt fram á 20. öld var jarðnæði. Yrðu menn bjargarþrota var annaðhvort að deyja drottni sínum eða að leita á náðir samfélagsins. Það var undir tvennu komið hvort samfélagið var þess megnugt að veita úrlausn: annars vegar umframframleiðslu lífsgæða og hins vegar samfélagsstofnunum sem gátu annast endurdreifingu þeirra lífsgæða sem til skiptanna voru. Heimildir um líf og kjör fátæklinga á liðnum öldum eru á hinn bóginn harla rýrar og kemur það m.a. til af því hve hversdagslegt og algengt fyrirbæri fátæktin var. Það þótti m.ö.o. oft ekki taka því að eyða bleki og bókfelli, pappír eða prentsvertu í að lýsa birtingarformum skortsins.

Hér verður sýnt með dæmum hvernig íslenskt samfélag síðmiðalda stóð að fátækraframfærslu. Þessu efni hefur ekki verið gerð viðhlítandi skil af sagnfræðingum þegar frá er talið stutt yfirlit Tryggva Þórhallssonar um ómagahald og matgjafir.1 Þá má segja að síðmiðaldir, að 16. öldinni meðtalinni, hafi ekki verið sérlega vinsælt viðfangsefni meðal íslenskra sagnfræðinga. Á 19. öld og langt fram á 20. öld var sjálfstæðisbaráttan ofarlega í hugum manna og val á viðfangsefnum mótaðist af henni. Því litu sagnfræðingar til heimilda frá 12. og 13. öld og varð vel til fanga um pólitísk umsvif yfirstéttar þeirra tíma. Á síðustu áratugum hefur sjónarhornið víkkað og sagnfræðingar rannsaka í auknum mæli lífskjör fleiri þjóðfélagshópa, svo sem kvenna, barna, gamalmenna, bænda, leiguliða og jafnvel öreiga.

Í eftirfarandi greiningu á félagsmálakerfi síðmiðalda verður það sett í samhengi við hugmyndir manna á meginlandi Evrópu um fátækraframfærslu og rætur þeirra hugmynda í fornum þjóðfélögum í Austurlöndum nær. Í þessu viðfangsefni og sjónarhorni tel ég felast nokkra nýlundu. Leitast verður við að sýna fram á verkaskiptingu veraldlegra stofnana, þ.e.a.s. bændaheimila og hreppa, og kirkjulegra stofnana á þessum vettvangi og bregða ljósi á skattamál og aðra útvegi til þess að fjármagna fátækraframfærsluna. Þá verður reynt eftir föngum að nálgast líf ómaga, sjúklinga, niðursetninga og förumanna, fólks, sem var upp á náð samfélagsins komið. Að lokum er dregin upp mynd af hruni þessa félagskerfis í kjölfar siðbreytingar og kirkjuordinansíu Kristjáns III frá 1537 en fall þess reyndist landsmönnum afdrifaríkt.

Heimildir eru aðallega sóttar í Íslenzkt fornbréfasafn, en einnig í Biskupa sögur, Heilagra manna sögur, Jarteinasögur og lögbækur. Þessar heimildir eru að sönnu strjálar og helst til rýrar en þó líklega betri en víðast hvar annars staðar í Norður-Evrópu. Í Íslendingasögum eru einnig heimildir um meðferð fátækramála og viðhorf miðaldamanna til þeirra. „Ég var ung gefin Njáli og hef ég heitið honum að eitt skyldi ganga yfir okkur bæði,“ sagði Bergþóra og lagðist undir nautshúðina með bónda sínum og dóttursyni.2 Setning þessi hefur jafnan verið túlkuð sem vitnisburður um ást Bergþóru á Njáli og hjónabandstryggð út yfir gröf og dauða. En setningin hefur aðra og nöturlegri vídd. Hver átti að framfæra hina stórlyndu konu þegar Njáll og synir hans voru dauðir? Varla hefði Bergþóra unað því að verða hornkerling dætra sinna og tengdasona eða fara á húsgang!

Kristin viðhorf

Lög og reglur um umgengni við fátæka og minni máttar má finna í hinum fimm bókum Móse, þ.e.a.s. í þeim ritum sem grundvalla siðfræði í samfélögum Gyðinga og kristinna manna. Þessi lög eru í raun kjarni boðskaparins. Í þeim samfélagsútópíum sem sprottnar eru úr þessum jarðvegi hefur sigur unnist á fátæktinni — í þeim er enginn maður fátækur. Spámenn Gamla testamentisins komu fram sem umboðsmenn ekkna og munaðarleysingja og settu fram kröfur um félagslegt réttlæti. Samfélagslegt réttlæti í formi fátækraframfærslu má því telja stjórnskipunarþátt í ríkisformi Gyðinga sem fluttist með kaþólsku kirkjunni til þeirra samfélaga sem í tímanna rás tóku kristna trú.3

Kristin kirkja þróaðist sem samfélagsstofnun sem gegndi m.a. því hlutverki að endurdreifa lífsgæðum. Á öldunum eftir Krists burð og allar miðaldir sinnti kirkjan fátækraframfærslu samkvæmt lögum Gamla testamentisins og líknarboðum Krists. Í þeim umsvifum gegndu biskupar veigamiklu hlutverki. Simplicius páfi (468–483) setti ákvæði í kanónískan rétt sem grundvallaði framfærsluskyldu þeirra. Þar er kveðið á um að fjórðungur tekna þeirra og þriðjungur af gjöfum til sóknarkirkna skuli ganga til fátækra. Kirkjugóssið var talið arfahlutur fátækra manna og biskuparnir kölluðust feður fátæklinganna.4 Bonifatíus, postuli Þýskalands, innleiddi þessa reglu víðs vegar um Þýskaland, og þar sem Norðurlönd tilheyrðu erkibiskupsstólnum í Brimum fram til 1104 má gera ráð fyrir því að regla þessi hafi borist frá Þýskalandi til Noregs og Íslands.

Miskunnsemi er samkvæmt kenningum kirkjunnar grundvallaratriði kristindómsins og forsenda fyrir sáluhjálp. Slík sjónarmið hafa verið mönnum sem einungis þekktu reglur ættarsamfélagsins mikil nýjung og væntanlega hefur tekið þá langan tíma að tileinka sér þau.5 Samkvæmt skólaspekinni var betlari ekki með öllu nytsemdarlaus maður því að hann gat með fyrirbænum sínum stuðlað að sáluheill þeirra sem sýndu honum miskunnsemi. Þeim sem guð gefur auðæfi leggur hann þær skyldur á herðar að lina fátækt náunga síns. Þá nýtur sá ríki náðar fyrir augliti guðs en hinn fátæki hlýtur að launum sigurkrans fyrir þolinmæði sína.6 Göfugt hugarfar gefenda og þiggjenda var prédikað íslenskum almenningi í fornum stólræðum og ber hugarfarsmenningu miðalda fagran vott. Sýna stólræðurnar einnig að íslenskir kennimenn hafa fylgt þeim guðfræðistraumum sem efst voru á baugi á meginlandinu í þann tíð. Í Alia sermonis, þ.e. í annarri jólaræðu segir í ávarpi til fátækra manna:

Nú vil ég mæla við yður, fátæka menn, er æstið [æskið] yður klæðnaðar og matar og lifið við ölmusugæði góðra manna. Huggist ér, kvöl yðar mun snúast í gleði og harmur yðar í fögnuð. Látið ér eigi yður leitt að biðja, því guð er réttlátur og mildur í öllum verkum sínum. Af því gerði hann yður auma, að ér skuluð bera vel skamma öreigð, en hafa eilífa fullsælu. Og af því gerði hann auðgan, að sá fengi lækning syndum sínum, ef hann gæfi yður af fé sínu.7

Varla hefur verið til svo aumur húsgangsmaður sem hlýtt hefur á þessa orðræðu að hann hafi ekki fundið nokkra huggun í vanmætti og styrkst í þeirri trú sinni að líf hans væri nokkurs virði og ekki til einskis barist.

Á Íslandi var fjölskyldan í víðri merkingu þess orðs frá fornu fari sú framleiðslueining sem lá til grundvallar hagkerfinu og sú samfélagsstofnun sem annaðist endurdreifingu lífsgæða, þar til kirkjulegar stofnanir tóku einnig að sér slíkt hlutverk. Hér er átt við lífsgæði eins og mat, klæði, skófatnað og húsaskjól og þá vernd sem fjölskyldan jafnan veitir. Þekking á skyldleika var fyrir margra hluta sakir lykilatriði til þess að halda uppi reglu í samfélaginu, einkum hvað varðaði arfgengi og framfærsluskyldu, sem og hefndarskyldu og atfylgi.8 Í ómagabálki Grágásar, sem er langur og ítarlegur og á sér vísast að hluta til rætur í heiðnu samfélagi, eru settar fram reglur um ómagaframfærslu sem bundin er við skyldleika. Af öllum þeim fjölmörgu dæmum sem þar eru tilfærð býður lesanda í grun að jafnan hafi menn kveinkað sér við þessari hlið félagsmála og reynt til hins ýtrasta að forðast að taka við ómögum, einkum þeim sem fjarskyldir voru. Af þeim sökum voru framfærslureglur ítarlegar og fjöldi dæma nefndur.9 Framfærslubálkur Jónsbókar er miklu styttri en tilsvarandi bálkur í Grágás og færri dæmi tilfærð.10

Með kristni kemur nýr samfélagsþáttur, kirkjan, til sögunnar í samfélögum Norðurlanda. Þegar kristnihald efldist á Íslandi hafa hugmyndir sem þróast höfðu í kirkjunni og kristnum samfélögum á meginlandinu um þau samfélagsmál sem kirkjulegar stofnanir létu til sín taka unnið sér sess í íslensku samfélagi. Er hér rétt að ræða kirkna-, presta- og guðsþjónustuhald og framfærslu og aðhlynningu þeirra sem veikir voru og vanfærir til þess að sjá sér farborða sjálfir. Þá má nefna aðhlynningu ferðamanna og pílagríma og samgöngumál (ferjur og brúarsmíð). Kirkjan hefur megnað að veita því fólki úrlausn sem átti ekki skýlausan rétt á aðstoð ættingja og hefur myndað stoðkerfi við þá fátækraframfærslu sem var á vegum bændaheimila og hreppa.11 Fyrir utan biskupsstóla sinntu klaustur og staðir (beneficium), einstakar kirkjur og prestsetur einnig fátækraframfærslu.

Útdeiling tíundar og skattareglur

Tíundin, sem leidd var í lög árið 1096, markaði tímamót, en með henni var fjárhagslegum stoðum skotið undir stofnun sem er í eðli sínu fyrir utan reglur ættarsamfélagsins. Samábyrgð samfélagsins á kjörum fátæklinga er í raun lögfest með þurfamannatíundinni, sem var fjórðungur tíundar, og kom í hlut hreppa að annast útdeilingu hennar. Þar sem hreppur var samtök 20 þingfararkaupsbænda þá kom til kasta bændaheimila hreppsins að annast þá framkvæmd tíundarinnar sem að hreppunum sneri. Skattareglur virðast hafa verið allstrangar en ekki þurfti að tíunda fé sem til guðsþakkar var lagt, hvort sem það var „til kirkna eða til brúa eða til sæluskipa“. „Kveðið er á um að fimm menn sem best eru til fallnir skuli skipta á haustin. Þá segir í sérstökum lið að konur skuli gjalda tíund sem karlar og er sú málsgrein allgóð sönnun fyrir þátttöku kvenna á Íslandi í efnahagslífi miðalda. Um þurfamannatíund segir svo: „Það skal vera í vaðmálum eða í vararfeldum eða í ull eða í görum eða í mat eða í kvikfé öllu nema hrossum“ og áttu viðtakendur að vera búnir að fá sinn skerf fyrir Marteinsmessu. Um útdeilingu segir að menn eigi „að gefa þeim meira er meira þarf“.12

Lög og hefðir kváðu annars vegar á um hversu mikið af lífsgæðum, í flestum tilfellum mat og húsaskjóli, hver aflögufær skattþegn skyldi leggja fram og hins vegar hverjir höfðu rétt til að verða úthlutunar aðnjótandi og í hve miklum mæli. Ströng innheimta tíundar og það ákvæði að þurfamenn einir skyldu taka það sem minna væri en af fimm hundruðum benda til þess að talsvert mikil áhersla hafi verið lögð á fátækraframfærslu á miðöldum og vísað hafi verið til hennar þegar réttlæta þurfti opinbera skattheimtu.

Það veldur nokkrum „krónólógískum vanda“ að lög um tíund og fátækraframfærslu eru að hluta mjög forn, þ.e. frá 11., 12. og 13. öld, en dómar þeir sem best henta til þess að lýsa beitingu þeirra og eðli eru tiltölulega ungir, þ.e. frá 15. og 16. öld. Þetta liggur í varðveislu heimilda og kyrrstöðu samfélagsins. Á hinn bóginn voru reglur kirkju og miðaldasamfélags í góðu gildi í hugum og réttavitund dómara þeirra sem kváðu upp dóma á síðmiðöldum.

Ævinlega hafa menn greint á um það hver ætti að greiða skatt og í hve miklum mæli. Í sögu Lárentíusar Hólabiskups (1324–1331) er greint frá því að slegið hafi í brýnu milli Auðuns biskups rauða (1313–1322) og lausamanna í Skagafirði þar sem biskupinn virðist helst hafa ætlað að afnema „skattleysismörk“ og heimta tíund af hundraði og þaðan af meiru.13 Þess skal getið að Auðunn biskup var frá Noregi og gæti þetta bent til þess að rekstur kirkjumála og skattheimta hafi verið tekin öðrum tökum þar en á Íslandi. Í dómi Þorvarðs Erlendssonar lögmanns sunnan og austan frá aldamótaárinu 1500 kemur fram að hreppstjórar ákæra búlausa menn fyrir að taka ekki þátt sem skyldi í að framfæra þá þurfamenn sem víða voru á húsgangi eftir undanfarandi harðindi. Vitnar lögmaður til þeirrar lagagreinar að búlausir menn sem peninga eiga skuli svara öllum „hreppsnauðsynjum til jafnaðar við bændur“ og er þetta sama atriðið og varð Auðuni biskupi og skagfirskum lausamönnum að misklíðarefni.

Því voru þeir búlausir menn sem áttu fimm hundruð skuldlaus og ómagalaus skyldugir að gjalda alin af hverju hundraði upp til 10 hundraða, þ.e.a.s. tíu álnir. Þeir sem áttu meira skyldu svara fullu manneldi til jafnaðar á móts við aðra. Að öðru leyti skyldu þeir kaupa sig undan þessari kvöð, annars yrðu þeir sektaðir um fjórar merkur. Þá er vitnað til þeirrar lagagreinar að svo skulu hreppstjórar skipta manneldi, að þar verði jöfn gisting þriggja manna, er þar eru hreppsmenn, nótt á hverjum 10 hundruðum. Liggur beinast við að skilja þetta á þann veg að þeim sem áttu 10 hundruð hafi borið skylda til að hýsa og ala mann um nótt. Hversu oft og hversu lengi hver göngumaður fékk slíkan beina kemur ekki fram af þessum dómi, enda er vísað til reglna sem hvert mannsbarn kunni skil á þeim tíma en eru nútímamönnum í hulinshjálp. Athyglisvert við þennan dóm er að búlausum mönnum er gert að greiða til fátækraframfærslu því að harðindi séu í landinu. Harðærið hefur ekki verið verra en svo að ýmsir vinnu- og lausamenn hafa þá verið í nokkrum álnum. Því miður verður ekki séð á hverju þessir búlausu menn hafa efnast en nokkrar þeirra hafa verið komnar upp fyrir „skattleysismörkin“, annars hefði dómur þessi tæplega verið upp kveðinn.14

Af einkar fróðlegum dómi yfir Sturlu Jónssyni (Maura-Sturlu) frá árinu 1540 má sjá að allítarlegar reglur hafa gilt um matgjafir og manneldi á vegum bændaheimila og mega þær í raun skoðast sem skattareglur. Dómur þessi varpar einnig ljósi á það hvernig útdeilingu fátækra-tíundar var háttað í samfélagi miðalda en hún hefur að öllu leyti farið fram inni á bændaheimilunum, enda óhægt um vik með geymslur á mat annars staðar en á biskupsstólum og í klaustrum. Bar húsbændum að gefa fátækum þann mat sem var afgangur af heimilisfólkinu en sparaðist við föstur. Þetta var gert eftir vissum reglum. Vinnuhjú sem ráðin voru til 12 mánaða voru skyldug að fasta og var matur þeirra gefinn fátæklingum.15 Hafði Sturla skotið þessum mat undan og hefur það sjálfsagt valdið sárindum hjá heimilisfólki hans að vita að maturinn sem það sparaði með því að herða sultarólina hvarf í hirslur maurapúkans. Einnig hafði Sturla látið undir höfuð leggjast að gefa fimmta hlutann af því fé sem hann setti á, en það voru „10 tigir að fjölda“ og er líklegt að hér sé um lömb að ræða. Þessi fjárútlát virðast hafa verið samkvæmt hefðbundnum skattareglum. Ýmislegt fleira var Sturlu borið á brýn, t.d. að hann hefði uppi ranga tíundargerð, þ.e.a.s. hefði svikist um að greiða biskupstíund, og sýnt af sér vinnuhörku með því að láta hjú sín vinna á helgum dögum. Þá var hann einnig dæmdur fyrir okur og fyrir að forsóma skyldugar kirkjugöngur. Fyrir þessar misgerðir hlaut Sturla strangar sektir og er ljóst af dómnum að hann hefur brotið freklega gegn lögum og viðteknum hefðarreglum.16 Þetta er ein af fáum heimildum sem veitir upplýsingar um hvernig skattheimta fór fram á heimilunum meðal vinnuhjúa og um virkt skattaeftirlit.

Afskaplega illa var fyrir þeim mönnum komið sem enga sveitfesti áttu og flökkuðu þeir um héraða á milli sem landshornamenn. Nokkra vitneskju um förumannaframfærslu veitir dómur sá sem tylftardómur Ara Jónssonar sýslumanns (?–1550) felldi árið 1544, enda tekur hann einnig til utansveitarmanna. Allir þurfamenn í Vaðlaþingi sem þar höfðu átt sveitfastan föður máttu fara fjórar umferðir á ári réttum boðburði um sveitir þær sem til þingsins lágu, biðja beininga á hverjum bæ. Þeir sem „ekki eiga löglegt framfæri og yfir ganga á húsgang“, þ.e. enga sveitfesti áttu þarna, máttu samkvæmt þessum dómi fara tvær umferðir.17 Af dómi þessum má glöggt sjá að mikill lagamunur var gerður á innan- og utansveitarfólki. Innansveitarmenn áttu rétt á beina færu þeir rétta boðleið. Hins vegar stóð bændum yfirleitt ógn af ókunnugum förumönnum og vildu losa sig við þá sem skjótast. Þessi tylftardómur er í rauninni mjög sanngjarn á þeirra tíma mælikvarða, a.m.k. miðað við sambærilega dóma eftir siðbreytingu, enda er hann kveðinn upp í Hólabiskupsdæmi í biskupstíð Jóns Arasonar er þeir Hólafeðgar stóðu á hátindi valda sinna og framfærslureglur miðaldasamfélagsins, sem mótaðar voru af hugmyndum kaþólskrar kirkju, voru enn í heiðri hafðar. Ekki hefur slíku örlæti alltaf verið til að dreifa og má geta þess til samanburðar að í alþingissamþykkt frá árinu 1489 er sett fram sú regla að bændur taki ekki þá menn í „bygðir eða vistir, sem þeir vita engin deili á, að þeir séu skilamenn“.18

Yrði maður bjargþrota var fyrst fyrir að leita eftir ættmanni hans sem samkvæmt lögbókarinnar hljóðan var skyldugur til að framfæra honum. Ef sá maður maldaði í móinn bar hreppstjórum skylda til að ganga úr skugga um hvort hann hefði forlagseyri. Svo virðist sem hreppstjórar jafnan að hafa haft dágóðar yfirsýn yfir fjárhag hreppsmanna sinna.

Sjálfsagt hafa oft komið upp harðvítugar deilur meðal ættingja og sýsluyfirvalda um framfærslu sjúklinga. Gott dæmi um deilur út af slíkum ómaga er frá árinu 1494. Arnór Finnsson í Ljárskógum í Laxárdal í Helgafellskirkjusókn hafði dæmt Sturlu Þórðarson til að framfæra frændkonu sína, Þóru Tumadóttur, sem var ósjálfbjarga. Sturla snerist öndverður við og fór með sjúklinginn ásamt allmiklu liði og setti niður í tún í Ljárskógum. Arnór vildi ekki taka við Þóru og urðu þar umtalsverðar ryskingar og hlutu báðir nokkra áverka. Af þessu athæfi urðu nokkur eftirmál milli deiluaðila og lýsir það tíðarandanum ágætlega að hvergi er minnst á afdrif Þóru.19

Annað ágætt dæmi um vafstur vegna niðursetninga er að finna í dómi á Víðavelli í Skagafirði frá árinu 1562. Skipa skyldi munaðarlausum systkinum „í ættir“. Annað systkinanna, drengurinn Steinn Þórðarson, var dæmdur Tómasi Þorkelssyni. Tómas hefur haft uppi einhverjar vífilengjur, því í dómnum segir:

En ef áðurgreindur Tómas væntist því að hann hafi ekki forlagseyri fyrir áðurgreindum ómaga, dæmdum vér hann skyldugan fram að telja fé sitt og láta skilvísa menn virða og vinna þar að fullnaðareið, að hann eigi ekki meira fé en hann fram telur nema minna sé. En ef þá virðist ekki forlagseyri fyrir áður greint barn, þá dæmdum vér oft nefndan Tómas Þorkelsson skyldugan að ryðja þessu áður greindu barni til löglegs framfæris fram í ættir þar til þann hittir er fé hefur.20

Kristbú og framfærsluákvæði í testamentisbréfum, máldögum og heitbréfum

Athyglisvert er að þegar yfirvöld voru búin að finna ættingja sem þau töldu færan um að sjá fyrir ómaga var sá fluttur til hans á vegum hreppsins. Úr því varð framfærslumaðurinn sjálfur að finna annan ættingja sem framfærslumann, ef hann vildi losna við þennan „svartapétur“. Í síðasta lagi hefur Tómas lögum samkvæmt losnað við þennan óvelkomna frænda sinn þegar pilturinn varð 15 ára. Með tilvísun í 1. grein þingfararbálks segir í dómi frá árinu 1559 „að ómagi sé skyldur að hverfa af fénu, þá er hann er fimmtán vetra, heill og verkfær.“21

Einhver ágreiningur kann að hafa risið upp um það í hreppum landsins í hve miklum mæli fátæku fólki væri heimilt að taka til sín framfærsluskyldan ættingja sem ekki hefði sveitfesti í hreppi framfærandans. Dómur frá árinu 1544 kveður á um að sá maður sem helgaði skyldmanni sínum sveit skyldi eiga fimm hundruð skuldlaust og ómagalaust.22 Hafa menn með þessum dómi sjálfsagt viljað stemma stigu við sveitþyngslum sem hlutust af því að fátæklingar tóku að sér fjarskyldan ómaga sem hlyti þannig sveitfesti og lentu síðan á sveitinni með allt sitt hyski, einnig með utan-sveitarómagann.

Ljóst er af þeim dæmum sem tilfærð hafa verið að lögum um meðferð fátæklinga hefur verið framfylgt af mismikilli nákvæmni — stundum af hörku en í annan tíma sáu menn í gegnum fingur sér. Hefur þetta sjálfsagt að miklu leyti farið eftir árferði og almennri afkomu í landinu.

Ein elsta heimildin í Fornbréfasafni um félagslegar ráðstafanir einkaaðila með kristilegu sniði er gjafabréf þeirra hjóna, Hallfríðar og Tanna, frá því um 1100, en í því ráðstafa þau hálfu Bakkalandi til sælubús, sem einnig var nefnt kristbú. Hluti af afrakstri þessa eignar skyldi renna til þess að veita ferðamönnum beina og væntanlega að ferja þá yfir það vatnsfall sem bærinn stendur við, sem mun vera Hvítá í Borgarfirði. Fylgdu þessum jarðarparti tíu kýr, sextíu ær og nýr bátur. Skyldi maður sá sem þar bjó „ala menn alla þá er hann hyggur til góðs að alnir séu“.23 Er hér átt við ferðamenn. Tanni áskildi sér forsjá staðarins meðan hann lifði en að honum látnum skyldi hann vera í forsjá Skálholtsbiskups, sem merkir að um þetta var gengið undan erfingjum þeirra hjóna og skyldi ferðamannastaðurinn vera sjálfseignarstofnun í umsjá biskups. Er hér á ferðinni nokkur nýjung í íslenskum eignarrétti því að fram til þessa höfðu kirkjur, kynslóðir og ættir átt allar jarðeignir. Á 11. og 12. öld koma kirkjulegar stofnanir, eins og klaustur, og mannúðarstofnanir, eins og sælubú, hins vegar til skjalanna sem lögaðilar eigna. Með stofnun sælubúa eða kristbúa er markvisst verið að skapa tekjustofna til framfærslu fátækra og til annarra samfélagslegra þarfa. Talið er að kristfjárjarðir (kristbú) hafi á síðmiðöldum verið um 1,2% allra jarðeigna.24

Þau hjón Hallfríður og Tanni gerðu ekki endasleppt í kirkjumálum heldur lögðu hálfa jörðina „undir Hrauni“, sem mun vera Staðarhraun, til kirkjunnar á staðnum og fylgdi henni ríflegur bústofn og lausafé, auk kirkjumuna. Í máldaga þessum er kveðið á um að þar skuli haldinn prestur og djákni. Þar skyldi og haldinn ómagi úr öndinni og ef enginn djákni væri á staðnum skyldi þar karlgildur ómagi koma í stað hans. Sést hér móta fyrir fátækraframfærslu á vegum kirkjunnar, sem átti eftir að þróast. Þá skyldi staðarhaldari „ala um nótt hvern mann, sem hann hyggur til góðs alinn sé“.25 Í máldaga frá 1118–1133 segir að Þorlákur Runólfsson Skálholtsbiskup hafi lagt tíundir af 14 bæjum til kirkjunnar á Staðarhrauni, væntanlega til þess að styrkja betur fjárhagsgrundvöll þeirrar þjónustu sem veitt var á staðnum. Ákvæði um framfærslu ómaga sjást víða í máldögum kirkna.

Kristbú var sett að Keldunúpi, gefið Kristi og Pétri postula, land með öllum gæðum og nytjum. Þar fylgdu fjórir tugir áa og einn veturgamall sauður, 14 sex álna aurar í klæðnaði og mælir korns eða hálf vætt matar. Á búinu átti að vera einn kvengildur ómagi, „sem ekki fer í föt sín og úr“. Hálf mörk vaðmáls skyldi greiðast í

Kirkjubæ á skírdag eða Pétursmessu og að auki kaup til prests. Þar skyldi gefa karlmannsverð hinn fyrsta jóladag, páskadag og hvítadrottinsdag (þ.e. hvítasunnudag). Og loks segir: „Nyt alls fjár, er fylgir, skal gefa Pétursmessu að morgunmáli. Lamb skal marka úr stekk hvert vor og skal Pétur ábyrgjast og gefa um haust er af fjalli kemur. Þar skal ala alla þurfamenn og þá er fara skyldu [sic] erinda.“26 Ljóst er að kristfjárbóndi gat varla efnast á búskapnum, enda voru kristfjárjarðir sjaldnast vildisjarðir og afgjalda- og framfærslubyrðarnar miklar. Af bréfi þessu má að nokkru greina hvernig fjármögnun félagsmála var hugsuð og henni til hagað. Kristfjárjörðin og bústofn hennar skyldu standa undir framfærslu ábúandans og fjölskyldu hans, framfærslu ómagans, aðhlynningu ferðamanna og matgjöfum á stórhátíðum, auk afgjalda til kirkjunnar og kaupi til prests. Þá bar fátæklingum nyt úr öllum skepnum vissa daga og lamb sem kom af fjalli var einnig til ráðstöfunar. En arður af einni jörð hefur varla dugað til allra þessara útgjalda, einkum ef tröð ferðamanna var mikil. Gera má fastlega ráð fyrir að einhverjir aðrir tekjustofnar eða sporslur hafi komið til þótt þeirra sé ekki getið sérstaklega.

Allmörg stofnbréf kristbúa eru til í Fornbréfasafni og eru þau svipuð að innihaldi og bréfið hér að ofan. Algengt var að gefandi kvæði á um að ómaginn skyldi jafnan vera úr ætt hans. Þá eru þess dæmi að fátækum mönnum væri veitt kristfjárjörð til ábúðar „til hjálpar og viðurlífis og sínu fólki“.27 Hreppstjóri eða forráðamaður tiltekins kirkjustaðar skyldi ráðstafa kristbúinu til ábúðar. Jarðeignir voru undirstaða mestallrar framleiðslu og fjármuna og líklega hefur verið algengt að jörðum fylgdu kvaðir um ómagaframfærslu. Í bréfi einu frá 1371 gerir Halldóra Þorvaldsdóttir upp skuldir sínar við Helgafellsklaustur þar sem hún var próventukona. Hún hafði gefið með sér til próventunnar fjórar jarðir með kúgildum. Þessum jörðum fylgdu kvaðir um ómagavist sem ráðamenn klaustursins vildu ekki fallast á. Halldóra varð því að nema þessi ákvæði.28

Svipuð ákvæði um ómagaframfærslu er að finna í testamentisbréfum auðugra manna. Loftur ríki Guttormsson arfleiðir syni sína

og ættkonu, og fylgja þar allstrangar kvaðir um ómagaframfærslu sem bundin var við ættina og segir þar:

„Item skipa ég Ormi, Skúla og Sumarliða að halda ómaga ævinlega sérhverjum þeirra af Skarðsverjaætt á Staðarholti, Garpsdal og Vatnshorni þeim sem mest þurfa. Skal sá ómaganum halda, sem jarðirnar eignast og svo skipa ég mínum löglegum erfingjum, að ómagi skal fæðast ævinlega á öllum þeim höfuðbólum, er þeir erfa eftir mig, á Skarði, Flatey, Galtardalstungu. Skulu þeir vera af Skarðsverjaætt. Enn af Möðruvellingaætt á Möðruvöllum, Lögmannshlíð, Ásgarðsbrekku, Sjávarborg, Marstöðum, Ásgeirsá. En Páls ætt Þorvarðarsonar á Eiðum, Njarðvík og Ketilsstöðum. En af ætt Gísla bónda á Mörk og Dal undir Eyjafjöllum. Skipa ég, að þeir fái átta álnir vaðmáls á hverjum XII mánuðum, hverjum fyrir sig. Skipa ég mínum löglegum erfingjum að halda þessa mína skipan stöðuga sem mitt testamentum inniheldur.“29

Er hugsanlegt að hér sé verið að koma til móts við fjarskyldari ættingja sem ekki voru bornir til arfs en voru Lofti engu að síður nákomnir. Mátti á þennan hátt milda áhrifin af ósveigjanlegum erfðareglum. Einnig má hugsa sér að með þessum ráðstöfunum sé höfðingja að launa fyrir forna vináttu og atfylgi, enda var forsjá fylgismanna og rausn hluti af sjálfsmynd miðaldahöfðingjans.30

Gera má ráð fyrir að ómagaframfærsla hafi verið enn víðar en skjalfest er, þar sem ekki hafa allar heimildir þar að lútandi varðveist. Mest hefur geymst af slíkum heimildum úr Skaftafellssýslum og ræður hér vafalaust tilviljunarkennd heimildavarðveisla. Kristbú hafa væntanlega verið jafnútbreidd í öðrum landshlutum og þar. Ákvæði um skyldur að hýsa og halda fátæklinga bæði til langframa og á stórhátíðum er að finna í máldögum kirkna og kristbúa.31 Gott dæmi um tímabundna framfærslu er að finna í máldaga kirkjunnar að Þakónufelli en þar segir:

Ómagi sá er sá vill er þar býr kvengildur skal þar koma að Þorláksmessu fyrir jól og vera fram yfir jól. En í öðru sinni að pálmasunnudegi og vera þar til, sem líður páskaviku. Og hið þriðja sinn að hvítadögum og vera uns líður sú vika.32 Dæmi eru til þess að ríkir menn gæfu ómagavist til kirkna með því skilyrði að vistin kæmi fátækum ættmönnum þeirra til góða.33 Þá er þess dæmi að maður kaupi ómagavist.34 Í máldögum kirkna koma fyrir ákvæði um ómagavistir og ráðstöfun lífsgæða, einkum hval­tíundar, til fátæklinga. Þá er ljóst af máldögum að kirkjur áttu gjarnan hvalreka, selver, eggver, veiðiréttindi ýmiss konar og kvikfénað, og að greiðslur til kirkna voru oft í formi matvæla og skæðis.35 Allt þetta gat nýst til fátækrahjálpar þegar reglur sögðu til eða ef í harðbakkann sló.

Í Ási í Holtum var t.d. Ólafskýr, en úr henni áttu fátæklingar alla nyt.36 Einnig mun hafa verið til siðs að gefa fimmta hlut veiðifengs sem fékkst á helgum dögum til fátækra.37 Þá var hefð fyrir því að útdeila mat og öðrum nauðsynjum á kirkjulegum stórhátíðum, jólum, páskum, hvítasunnu, Mikjálsmessu, sem og á postulamessum, einkum ef viðkomandi kirkja var helguð postulanum sem messudaginn átti. Dæmi er um ákvæði í máldögum þess efnis að viðhald á brúm og ferjum sé kostað af kirkjufé.38 Þá má gera ráð fyrir að margvísleg úrræði og form á aðstoð við fátæka hafi tíðkast, þótt heimildir bresti fyrir því.

Heitbréf veita innsýn inn í hugarheim miðaldamanna, einkum hvernig þeir brugðust við andstreymi. Af þeim heitbréfum sem prentuð eru í Fornbréfasafni má sjá að þegar mönnum þótti mikils um vert að sættast við almættið lofuðu þeir bæði auknu helgihaldi

og auknum föstum og framlögum til fátækra, enda var viðtekinn sannleikur að slíkt væri guði þóknanlegt. Í heitbréfi Eyfirðinga frá árinu 1477 lofa menn að gefa ölmusur eftir efnum og ástæðum, bændur þó ekki minna en alin. Búlausir menn sem meira áttu en 10 hundruð skyldu gefa klipping en þeir sem áttu fimm hundruð skyldu gefa kálfskinn. Skyldi þessi ölmusa ganga til þess „sem í búi liggur“ og er hér líklegast átt við ómaga sem ekki er rólfær og fær ekki að hafast við á sama stað. Þá skyldi hver maður sem í búi er gefa málsverð á Guðmundardag og skyldi það vera 2 1/5 mörk smjörs eða annar jafnvirður matur.“39 Þarna er sem sagt gert ráð fyrir útdeilingu matgjafa á bændaheimilum á tilteknum kirkjulegum hátíðisdögum. Til glöggvunar á útdeilingu matgjafa er rétt að tilfæra dómságrip frá árinu 1477, en þar er málsverður talinn vera „hálf þriðja mörk smjörs eður annar jafnvirður matur“.40

Innrétting kristilegra lífsgilda í mörg hundruð ár, ekki hvað síst ölmusugæða, hefur án efa átt þátt í að móta samfélagið í mannúðarátt. Tíundarlögin og hefðbundnar reglur um matgjafir og aðra þjónustu við þurfamenn hafa einnig átt sinn þátt í að koma upp raunhæfu skattakerfi og eftirliti með skattgreiðslum og sýnast þær að vissu leyti hafa verið tengdar föstum, sem allur almenningur átti og hægt var að koma eftirliti við. Vegna þess að framlagið varð greitt ekki í peningum heldur matvælum og húsaskjóli þá varð fátækra­tíundin að greiðast á heimilunum sjálfum. Húsgangur hefur jafnan verið neyðarúrræði þeirra sem ekki áttu bjargálna ættingja sem bar skylda til að framfleyta þeim að staðaldri.

Fátækraframfærsla biskupa

Þar sem biskupum bar samkvæmt kanónískum rétti að sinna um fátæklinga hefur jafnan verið örtröð snauðra manna á báðum íslensku biskupsstólunum. Í Hungurvöku segir að Ísleifur biskup (1056–1080) hafi haft „óhægt bú fyrir peninga; voru föng lítil, en aðsókn mikil, og var honum erfitt búið.“41 Úr þessu rættist með setningu tíundarlaga en þá lagðist biskupsstólunum til biskupstíundin, sem var fjórðungur tíundarinnar, „en það skal vera í vaðmálum eða í vararfeldum eða í lambagærum eða í gulli eða í brendu silfri“. Skyldi biskupstíundin gjaldast á fimmtudegi er fjórar vikur væru af sumri, en helst fyrr.42 Samkvæmt ofangreindum reglum um að hluti af biskupstekjum skuli renna til fátæklinga, hlýtur biskupstíundin að hafa komið fátækraframfærslu á biskupssetrunum til góða.

Með Þorláki biskupi Runólfssyni var Tjörvi Böðvarsson prestur, „mikill dýrðarmaður“, eins og segir í Hungurvöku. Þessum manni féll aldrei verk úr hendi, hann var annaðhvort að syngja saltara, kenna, rita, lesa eða lækna „ráð þeirra manna, er þess þurftu og að hans fund komu“. Hann hafði það skaplyndi að vera „örr við aumingja, en kallaður féfastur við alþýðu, og sparði þó aldrei peninga at nauðsynjum til allra þarflegra verka.“43 Tjörvi hefur greinilega haft á hendi starf gestamanns eða ráðsmanns í Skálholti og sinnt því af svo mikilli alúð að í annála var fært.

Um eftirmann Þorláks Runólfssonar á biskupsstóli, Klæng Þorsteinsson (embættistíð 1152–1176), var ritað „að hann var stórlyndur og stórgjöfull við vini sína, en örr ok ölmusugóður við fátæka menn“. Klængur var greinilega höfðingi mikill að fornum sið sem ræktaði frændsemis- og vináttubönd og efldi þannig samfélagsáhrif sín, jafnframt því sem hann sinnti vel biskupsskyldum sínum við fátæklinga. Þurfti biskupsbúið mikils við fyrir sakir fólksfjölda og gestrisni. Þá stóð Klængur fyrir kirkjusmíði og hleypti þá greinilega fjöri í atvinnulíf í biskupsdæminu og skapaði fjölbreyttari „atvinnutækifæri“ en áður höfðu þekkst.44 Þótti samtímamönnum hans svo mikið til um umsvif hans að ritari Hungurvöku telur að rausn hans muni uppi vera meðan Ísland sé byggt. Af þessari lýsingu má glögglega ráða að í biskupstíð Klængs biskups var Skálholtsstóll orðinn að aflvaka í atvinnulífi og stór vinnuveitandi jafnframt því að vera félagsmálastofnun sem annaðist endurútdeilingu lífsgæða meðal fátæklinga. Þorlákur Þórhallsson (embættistíð 1178–1193), öðru nafni Þorlákur helgi, lagði og rækt við fjárhagsgrundvöll Skálholtsbiskupsstóls og hafði jafnan góða ráðsmenn svo

að hann „mætti frjálsastur vera sjálfur frá þeirri önn“.45 Hann tók mjög alvarlega hlutverk sitt sem faðir fátæklinganna og segir í sögu hans:

Hann lagði mikla stund á að elska fátæka menn; klæddi hann kalna en fæddi hungraða, og var það auðsýnt, að honum gekk það sjaldan úr hug, hvað fyrir höndum er á dómsdegi, [hve mjök það er kallað at á hirti ríði hversu til fátækra manna var gert í þessu lífi].46

Titillinn „faðir fátæklinganna“ virðist hafa fest í sessi þegar á 12. öld og forsjárhlutverkið hafa verið orðið hluti af biskupsembættinu í hugum Íslendinga. Þessi sami titill var einnig notaður um Jón Ögmundsson Hólabiskup (embættistíð 1106–1121) en um hann segir: „Hann var sannur faðir allra fátækra manna, huggaði ekkjur og föðurlausa, og engi kom svo harmþrunginn á hans fund, að eigi fengi á nokkurn veg huggan af hans tilstilli.“47 Þótt Biskupa sögur beri margar hverjar keim af helgisögum má alveg taka þær trúanlegar hvað snertir lýsingu á eðli biskupsembættisins og ráðstöfunum sem menn gripu til við úrlausn í málefnum fátækra. Og víst er að þessir tveir síðast töldu biskupar, sem annálaðir voru sakir ástar sinnar á fátækum mönnum og efnahagslegrar forsjár, voru teknir í sælla manna tölu.

Ást Guðmundar Arasonar (embættistíð 1203–1237), sem hlaut viðurnefnið „hinn góði“, á fátækum og umkomulausum var hins vegar ekki í samræmi við þau efni sem hann hafði til útdeilingar. Hann virðist hafa samsamað sig svo mjög fátækum fylgismönnum sínum að hann lenti út af því í erjum við volduga frændur sína í Skagafirði svo að endaði með skelfingu. Virðist Guðmundur hafa skort efnahagslega fyrirhyggju og lipurð í umgengni við þá hópa samfélagsins sem aflögufærir voru. Má vera að hann hafi verið undir áhrifum frá erlendum betlimunkareglum sem áttu sér upptök í borgarsamfélögum sunnar í álfunni. Á Íslandi voru á 13. öld búin til önnur efnahagsleg úrræði en þau sem afla mátti með landbúnaði, fiskveiðum og öðrum veiðum. Í sögunni er tæpt á því hvernig matgjöfum var hagað á biskupsstólnum. Guðmundur vildi gefa fátæklingum í þrjú mál en Kolbeinn frændi hans rak þá í

gestahús og lét gefa þeim í eitt mál og varð þessi aðsjálni þeim frændum að misklíðarefni.48 Vegna örlætis Guðmundar safnaðist mikill fjöldi fátækra manna saman á Hólum og óttuðust bændur ofbeldi af þeirra hálfu þegar föng tók að þrjóta. Hafi Guðmundur ætlað að breyta Hólastól í fátækraspítala þá lukkaðist það ekki. Voru fylgismenn hans hraktir burt frá Hólum og segir fátt af örlögum þeirra en þeim mun meira af þeim frændum Tuma og Kolbeini og þeirra mönnum.

Af deilum Auðuns rauða biskups við séra Snjólf á Grenjaðarstað má ráða að biskupar hafi viljað hafa hönd í bagga með framfærslu verkefnalítilla presta en hún hefur líklegast fallið undir ómagaframfærslu. Málavextir voru þeir að séra Snjólfur vildi ekki taka við presti sem biskup hafði skipað til hans. Lét biskup þá sverja að sjö kennimenn skyldu sitja á Grenjaðarstað.49 Séra Snjólfur hlýtur að hafa haft nokkuð mikið til síns máls því að varla hafa svo mörg prestsverk fallið til á Grenjaðarstað að sjö kennimenn hafi haft nóg fyrir stafni — nema kannski við bænahaldið, sem líklega hefur verið óþrjótandi.

Um skipan fátækraframfærslu á Hólum í biskupstíð Lárentíusar Kálfssonar segir þetta í sögu hans:

Það er eigi gleymandi, heldur góðum mönnum birtandi, hversu margar ok fagrar ölmusur hann [Lárentíus] lét gera af staðarins góðzi á Hólum, sem hann var biskup. Allt prófastsdæmið, það sem fell í sakeyri og öðrum sektum gaf hann fátækum, þeim, sem mest vóru þurfandi, einkanliga þeim, sem áður höfðu í búi verið, líkþrám, blindum eður þeim, sem mestan krankdóm höfðu. Þar til skipaði hann presta að láta reka prófastsdæmi; hafði það fyrst síra Páll Þorsteinsson, en síðan síra Björn Ófeigsson. Skipaði byskupinn þeim slíkt af sem honum líkaði fyrir armæðu sína, og þetta helz um hans daga. Var þetta mörgum þurfundum mikil hjálp, en allir létu úti með góðu. Tólf ölmusumenn skipaði hann, at vera skyldi heima á Hólum og útibúum staðarins; vóru þessir bæði fæddir og klæddir. Á langaföstu vóru inn teknir fimm fátækir ok vóru þeir fram yfir páskaviku. Á Michaelsmessu á haustið skyldi ráðsmaður stika niður tvá tigu hundraða vöru í vaðmálum, þetta skyldi gefa fátækum mönnum í vald í vaðmálum um vetrinn ok fram yfir vítadag. Skyldi þetta út gefa og skipta með fátækum gestamönnum, þeim sem honum þótti mest þurftugir eða byskupinn vísaði til hans fyrir stærstu hátíðir og var þar til valdur dyggur maðr, góðfús ok skynsamur; var það Þorsteinn Þorleifsson. Allt það góðz, sem gefið var í vaðmálum árliga til staðarins lét hann bera heim í herbergi sín og lét hann allt gefa fátækum mönnum.50

Þá gleymdi Lárentíus biskup ekki starfsliði sínu og skjólstæðingum og segir svo í sögunni: „Jólaveizlu lét hann jafnan sæmilega halda prestum og öllum klerkum, próventumönnum, bryta og ráðskonu og öllum heimamönnum, svo að allir höfðu nógan fögnuð.“51

Á biskupsstólum og væntanlega einnig á klaustrum voru svokallaðir gestamenn sem sinntu gestum og gangandi eins og siður var í klaustrum úti í Evrópu. Á stórhátíðum var matvælum, skæði og fötum skipt upp á milli fátækra manna og hafa slíkar aðgerðir létt undir með almenningi við að sjá fátæklingum og förumönnum farborða. Á messudögum þeirra biskupa Guðmundar góða og Jóns Ögmundssonar lét Jón Arason biskup (embættistíð 1524–1550) einnig skipta upp 20 hundruðum og hefur hann sjálfsagt stuðst við forna hefð. Þegar Jón biskup Arason beið aftöku sinnar sendi hann orð og jarteinir heim að Hólum um að ráðsmenn skyldu skipta upp 60 kyrvingum meðal fátækra og voru það 60 vættir smjörs (u.þ.b. 2040 kg), 1200 fiskar, 18 staup af floti, 8 voðir vaðmáls og 10 húðir.52

Engin ástæða er til þess að ætla annað en að matgjöfum hafi verið úthlutað af svipaðri rausn í Skálholti, enda fékk Ögmundur biskup Pálsson (embættistíð 1521–1540) fögur ummæli fyrir að hafa verið „furðu mildur að auði og mat“. 53

Í Biskupa sögum og Heilagra manna sögum sést víða móta fyrir siðvenjum um áheit sem komu fátækum mönnum eða helgihaldi til góða og mega þau teljast til tekjustofna kirkna, þótt óvissir séu. Í Sögu Þorláks biskups hinni elstu segir frá áheitum á sælan Þorlák. Þorbjörn nokkur í Grindavík heitir því að fæða fimm fátæka menn, syngja fimm sinnum Davíðs saltara og lesa „orationem“, Deus qui populo tuo, honum til dýrðar.54 Annað áheit í sömu heimild var á þá leið að maður sem í nauðum var staddur hét að ljá hest til flutnings í Skálholt, raft til kirkjunnar og þann sel sem fyrstur veiddist til að skipta með fátækum mönnum. Þá var það algengt efni áheita að gefa fátækum málsverð svo og svo oft, auk þess að gefa vax og vaðmál til tiltekinnar kirkju.55

Framfærslumál aldraðra og fátækra presta var að einhverju leyti forgangsmál hjá oddvitum kirkjunnar. Er frá þessu sagt í Lárentíusar sögu, en Lárentíus biskup lét félagsmál mjög til sín taka og stofnaði prestaspítala að Kvíabekk í Ólafsfirði svo að gamlir og lasnir prestar þyrftu ekki að vera á húsgangi. Vandað var mjög til fjárhagsgrundvallar spítalans á Kvíabekk og var t.d. hver prestur í biskupsdæminu skyldur að greiða til hans í þrjú ár hálfa mörk hver. Þá voru um alla framtíð lögð til 50 lambseldi um allan Ólafsfjörð og Fljót. Þá lagði Lárentíus „vanhagafé“, þ.e.a.s. sektir, til spítalans. Þá var auðvelt að afla sjávarfangs til Kvíabekks, enda segir í sögunni að biskupi hafi „þótt þar gott til blautfisks og búðarverðar“.56 Annar slíkur prestaspítali var settur niður í Gaulverjabæ í Flóa.57

Flestar heimildir um meðferð á fátækum og vanfærum eru ritaðar frá sjónarhorni valdsmanna eða hinna auðugu, þeirra sem voru til kvaddir að ráða bót á tilteknum vanda. Glöggar lýsingar á kjörum alþýðu er helst að finna í Heilagra manna sögum og Jarteinasögum og má þar greina nöturlega lífsbaráttu þar sem áheit og bænir til helgra manna voru helsta haldreipi volaðra. Verst var það fólk sett sem ekki hafði neina vist, engan átti að og varð því að vera á húsgangi, kannski fárveikt.

Í Sögu Þorláks biskups hinni ýngstu er brugðið upp mynd af slíkum hremmingum. Fátæk kona, Álfheiður að nafni, tók fótarmein og var af þessu ekki verkfær: fór hún þá um nokkra stund hús úr húsi mæðilega, við vos og vaðla spiltist mjög meinið ... að lyktum lagðist hún fyrir á bæ þeim er heitir á Þorvaldsstöðum og þóttist varla lífvæn af sulti og sárleika til fótarins og brjóstleysis, því að hún skreið stynjandi og grátandi lengi áður bæja á millum.58 Á Þorláksmessu lagðist hún niður en þar sem hallæri var í landinu vildu menn „henni lítinn dugnað veita“. Augljóslega voru húsráðendur þannig að hús þeirra voru ekki í stakk búin til þess að bæta á sig ósjálfbjarga sjúklingi. Samkvæmt helgisögu þessari kom hinn sæli Þorlákur til skjalanna og leysti Álfheiði úr kröminni.59 Skiptir í þessu samhengi harla litlu máli hvort konan Álfheiður er söguleg persóna eða skáldskapur; sagan lýsir á raunsannan hátt píslargöngu sjúklings á miðöldum sem fær sér enga björg veitt.

Í dómum Fornbréfasafns leynast upplýsingar um ráðstöfun og meðferð á sjúklingum og niðursetningum sem eru lýsandi fyrir þennan málaflokk. Sveitfesti og ætterni voru grundvallaratriði í þeim lögum sem dómar þessir hvíla á. Af þessum dæmum má greina vilja til að sinna ómagaframfærslu á skipulegan hátt. Hins vegar hljóta menn að hafa freistast til að ýta frá sér langlegusjúklingum og mjög veiku fólki, eins og dæmið af Hallottu Hákonardóttur frá árinu 1477 sýnir. Hallotta missti heilsuna gjörsamlega þá er hún var til heimilis í Húnaþingi. Björn bóndi Jónsson brá það ráð að flytja sjúklinginn á bú Hólakirkju á Flugumýri í Skagafirði og skilja hann þar eftir. Forráðamenn Hólakirkju töldu brotið á kirkjunni í þessu máli og var Björn dæmdur til að bera kostnað af vist konunnar á Flugumýri og greiða sektir vegna óskammfeilni sinnar. Honum var gert að flytja Hallottu aftur í Húnavatn.60 Sú staðreynd að Björn flutti sjúklinginn á bú biskupsstólsins bendir eindregið til þess að kirkjan og stofnanir henni tengdar hafi verið þrautalendingin þegar um var að ræða umönnun langlegusjúklinga sem voru venjulegum heimilum ofviða. Um framfærslu af þessu tagi hafa vísast gilt reglur sem ljóst er að Björn bóndi virti ekki og má vera að hann hafi haft næg efni og framfærsluskylda hans við Hallottu verið of skýr til þess að Hólakirkja hlypi undir bagga. Þetta er gott dæmi um þær stimpingar sem miðaldamenn gátu lent í við félagsmálakerfi sinnar tíðar og er ekki örgrannt um að nútímamenn kannist við hremmingar af svipuðu tagi.

Gott dæmi um það hversu oddvitum miðaldasamfélagsins var umhugað um að gegna líknarskyldu við fátæka og vanfæra er stofnbréf að spítölum við Allra heilagra kirkju og kirkju heilagrar Katrínar í Vogsbotni í Björgvin í Noregi frá árinu 1276. Að þessu myndarlega félagsmálaátaki stóð Magnús konungur Hákonarson (embættistíð 1263–1280) og Áskatinn biskup ásamt Eiríki ábóta í Munklífi og kórsbræðrum við Kristkirkju. Við Allra heilagra kirkju áttu að vera 30 sængur fyrir karlmenn og í Katrínarkirkju 20 sængur fyrir kvenmenn. Stranglega var fyrirboðið að taka hér inn próventufólk þannig að þessir spítalar voru glögglega ætlaðir sauðsvörtum almúganum. Þá eru í þessu bréfi nákvæm fyrirmæli um viðurgjörning við sjúklingana og um kaup og kjör spítalapresta og umgengnishætti starfsfólks.61 Þetta bréf sýnir að hefð var fyrir því í hinu norska ríki og Niðaróserkibiskupsdæmi að konungar og biskupar beittu sér fyrir úrbótum í fátækraframfærslu og félagsmálum. Þessar hefðir voru einnig virkar hérlendis og hafa lagt mönnum skyldur á herðar, einkum kirkjunnar mönnum.

Um spítala fyrir almenning er ekki getið í heimildum nema um spítala þann eða vísi að spítala sem Ögmundur biskup Pálsson (1521–1540) í Skálholti setti á stofn. Ögmundur fékk árið 1525 til landsins þýskan lækni, Lazarus Mattheusson, og setti hann niður á Skáney og skyldi hann lækna sjúka gegn vægu gjaldi. Meðöl skyldi læknirinn leggja til sjálfur. Um þessar mundir gerði sárasótt vart við sig hérlendis, sjálfsagt ekki síður en eyðnin nú til dags, og Ögmundur biskup taldi augljóslega í sínum verkahring að taka á þessum sjúkdómsvanda og stofna vísi að spítala.62 Næsta ótrúlegt er að læknishúskapur Lazarusar á Skáney hafi staðið undir umsvifamiklu spítalahaldi og hljóta aðrir tekjustofnar að hafa komið til.

Félagsmálaumsvif klaustra

Íslensku klaustrin voru — eins og aðrar kirkjulegar stofnanir í kaþólskum sið — bundin grundvallarkenningum kristindómsins um líknarskyldu (caritas).63 Benedikt frá Núrsíu lagði svo fyrir í reglum sínum um klausturlifnað að „allir ókunnugir, sem koma, skulu fá viðtöku eins og sjálfur Kristur“.64 Ríkir menn gáfu fyrir sálu sinni, fyrir kirkjum eða klaustrum gjafir, en í staðinn skyldu klausturmenn biðja til guðs fyrir hinum framliðna gefanda. Þessu bænahaldi fylgdu matgjafir. Þar sem siður var að gefa fátæklingum matarskammt þróaðist fátækraframfærsla klaustra, 65 sem oft varð geysistór útgjaldaliður þessara stofnana. Þegar litið er til þessara fjárhagslegu þátta er ekki að undra þótt ábótar og abbadísir hafi vakað yfir varðveislu eigna sinna. 66 Því miður hafa skjalasöfn íslenskra klaustra fátt varðveitt og verður því reynt að álykta um framlag þeirra til fátækraframfærslu út frá miðevrópskum reglum og hefðum um umsvif klaustra í þessum efnum.

Á meginlandinu á miðöldum sinntu sóknarkirkjur, klaustur og spítalar fátækraframfærslu og veittu pílagrímum, ferðamönnum og fátæklingum beina.67 Klaustur mótuðust af félagslegum og efnahagslegum veruleika lénsskipulagsins og jarðeignaveldisins og bygging þeirra var sniðin að þörfum þess konar samfélags. Þegar borgir tóku að þróast urðu til önnur félagsmynstur sem hentuðu betur breyttum tímum. Í borgum mynduðust félög sem nefndust bræðralög.

Bræðralög. Stofnuð voru gildi handverksmanna og annarra stétta og nutu félagsmenn stuðnings frá þeim. Félagsmenn greiddu félagsgjöld í fjárhirslur bræðralagsins og oft áttu slík félög húsnæði þar sem hægt var að skjóta skjólshúsi yfir fólk í vanda. Aðsetur bræðralaga var að sjálfsögðu félagsmiðstöð og þar skiptust menn á fréttum og skoðunum. Bræðralag Íslandsfara í Hamborg átti sér t.d. bækistöð í Sankti Önnu-kapellunni í kirkju heilags Péturs og Páls.68 Bjargarlausir öreigar gátu hins vegar lítið liðsinni veitt hver öðrum. Aldraðir, sjúkir og fátækir fengu stuðning frá sínu nánasta umhverfi, ættingjum, nágrönnum og sóknarkirkjum.69 Þar sem borgir komu ekki til sögunnar á Íslandi fyrr en í byrjun 20. aldar þróuðust hvorki bræðralög né gildi hérlendis að neinu marki, heldur héldu menn fast við þá fátækraframfærslu sem komst á á miðöldum og mótaðist af jarðeignaveldinu, sem hélst í grundvallaratriðum allt fram á 20. öld.

Við lok miðalda voru á Íslandi níu klaustur og má það teljast myndarlegt ef gengið er út frá því að tala landsmanna hafi yfirleitt sveiflast milli 40 og 60 þúsund. Voru þetta sjö munkaklaustur og tvö nunnuklaustur af Benedikts- og Ágústínusarreglum. Munkar og nunnur sóru eið að því að ástunda hlýðni, hreinlífi og fátækt. Á síðmiðöldum var tala þess klausturfólks sem tekið hafði vígslu að jafnaði fremur lág.70 Í registri sem Gizur Einarsson súperintendent í Skálholti skráði eða lét skrá árið 1542 kemur fram að munkar í Skálholtsbiskupsdæmi hafi verið átján og nunnur sjö.71 Klaustur á miðöldum voru stéttskipt samfélög. Það fólk sem tók full klausturheit var jafnan úr auðugum og áhrifamiklum fjölskyldum. Auk munka og nunna má gera ráð fyrir að í íslensku klaustrunum hafi verið hópur leikbræðra og leiksystra.72

Sum íslensku klaustrin voru mjög auðug af jarðeignum. Helgafellsklaustur átti við siðbreytingu 120 jarðir, Viðeyjarklaustur átti 95 og Þykkvabæjarklaustur 55, Skriða 40, Möðruvellir 55, Munkaþverá 61 og klaustrið á Þingeyrum átti 74.73 Nunnuklaustrin tvö voru ívið efnaminni, klaustrið á Reynistað átti um siðbreytingu 41 jörð en Kirkjubæjarklaustur átti 39 jarðir. Alls námu þessar jarðeignir 13 af hundraði allra jarðeigna landsins.74 Fráleitt er að álíta að arðurinn af öllum þessum jarðeignum hafi runnið til þess að framfæra fáeina munka og nunnur sem bundist höfðu fátæktarhugsjóninni með eiði, ásamt þjónustu- og starfsliði þeirra á hverjum tíma. Þar við bættist að gjöld voru oftar en ekki greidd í matvælum sem erfitt var að geyma lengi.

Af skjölum um klaustur má sjá að þar hefur farið fram kennsla og til eru samningar milli yfirmanna klaustra og forráðamanna barna eða unglinga.75 Í íslensku klaustrunum var stunduð handiðn, svo sem refla- og bókagerð.76 Það gefur augaleið að sá vísir að verkaskiptingu sem þarna átti sér stað gerði kleift að nýta starfskrafta pasturslauss fólks sem í öðru félagslegu samhengi var til lítils. Þá gátu klaustrin hlaupið undir bagga og veitt hröktu fólki skjól og leyst tímabundinn tilvistarvanda skjólstæðinga sinna. Í „Ritgjörð“ Jóns Gizurarsonar segir frá því að Sigvarður ábóti í Þykkvabæ hafi tekið við Gizuri Einarssyni, síðar súperintendent í Skálholti (1540/2–1548), þegar fokið var í flest skjól fyrir honum.77 Halldóra abbadís á Kirkjubæ, föðursystir Gizurar, veitti konu nokkurri sem hafði orðið fyrir barsmíðum af hálfu eiginmanns síns skjól í klaustrinu en súperintendentinn, frændi hennar, áminnti hana um að senda konuna til síns heima þar sem slíkt heimilisofbeldi væri ekki skilnaðarsök.78

Hefð var fyrir því að kirkjur væru griðastaðir ofsóttra og er líklegt að Halldóra hafi í þessu máli stuðst við fordæmi sem almenn sátt var um. Því miður er þetta eina heimildin sem varðveist hefur um hlutverk íslenskra nunnuklaustra sem kvennaathvarfs.

Ef ályktað er út frá evrópskri hefð um líknarstarfsemi í klaustrum má gera ráð fyrir að fátækum mönnum hafi verið veittur beini í íslenskum klaustrum sem annars staðar. Í lágþýsku bréfi sem kaupmenn, borgarar og skipstjórar í Hamborg rituðu Danakonungi 1540 segir að í klaustrinu Viðey séu daglega aldir 40 fátækir menn.79 Bréf þetta ber með sér að bréfritarar eru vel kunnugir íslenskum aðstæðum, enda kemur fram í því að Íslendingar höfðu farið þess á leit við þá að þeir ábyrgðust lög og rétt á Alþingi. Þessir 40 fátæklingar eru allstór hópur, jafnvel þótt próventufólk sem lagt hafði próventu sína á borð með sér sé hér innifalið í þessari tölu. Í klaustrinu í Cluny í Frakklandi voru 72 fátæklingar brauðfæddir daglega en við þann fjölda munu hafa bæst tilfallandi förumenn.80 Gera má ráð fyrir að þetta mikla framlag Viðeyjarklausturs til fátækraframfærslu hafi byggst á hefð og hin klaustrin átta hafi lagt álíka af mörkum í samræmi við efnahag, þótt heimildir bresti um þetta.

Eins og getið er um hér að ofan, höfðu klaustur á Íslandi margvíslegu hlutverki að gegna, ekki hvað síst á sviði félagsmála og efnahagsmála. Íslenskir ábótar og abbadísir töldust til helstu oddvita landsins og veittu miklum jarðeignum forstöðu. Innan klausturs síns höfðu ábótar og abbadísir biskupstign. Í kirkjuordinansíunni frá 1537 er lítillega vikið að klausturfólki og þar með óbeint að klaustrum. Það vekur athygli að ekki er gert ráð fyrir að klaustur séu lögð niður en munkum og nunnum er hins vegar veitt heimild til þess að yfirgefa klaustrin ef klausturdvölin gengur á móti samvisku þeirra. Af textanum má draga þá ályktun að klausturfólk yrði að teljast ómagar sem beri að framfleyta ef það vill vera áfram í klaustrum sínum. Nunnur eru áminntar um að vera „sinni príorissu, forstöðumanni og abbadís hlýðugar og undirgefnar“ og varaðar við öllum reisum um landið og drykkju eða ósæmilegum glaum með karlmönnum.

Siðbreyting og nýskipan konungsvalds

Vilji þær yfirgefa klaustrið þá var þeim það frjálst svo fremi sem þær ættu sér víst uppihald og þær máttu gifta sig að ráði frænda og vina.81 Af þessu má líklegast ráða að hér sé átt við klausturfólk af fransiskana- og betlinunnureglum, sem siðbreytingarmenn snerust eindregið gegn. Þar sem förumunkareglur bárust aldrei til Íslands snertu þessar greinar ordinansíunnar klausturlifnað sem var allt annars eðlis og hafði veigameira hlutverki að gegna í íslensku samfélagi en kirkjuordinansía Kristjáns III gerði ráð fyrir. Við siðbreytinguna gengu eignir klaustranna til konungs sem fékk þær fylgismönnum sínum og umboðsmönnum til varðveislu fyrir væga leigu. Arður þessara eigna kom samfélaginu ekki til góða í sama mæli og áður en skaut hins vegar stoðum undir efnahag trúrra fylgismanna konungsvaldsins á Íslandi.

Þau pólitísku umskipti sem urðu í Danmörku við valdatöku Kristjáns III árið 1536 drógu á næstu áratugum dilk á eftir sér hér á landi. Við þessi tímamót urðu mikil umskipti í stjórnskipan, félagsskipan og efnahagsmálum landsmanna; þau hafa verið nefnd siðaskipti, siðbót eða siðbreyting, en þau hugtök lýsa þó ekki breytingunni í átt til miðstýrðs ríkis. Kirkjuordinansía Kristjáns III var lögð til grundvallar nýrri kirkjuskipan og kippti hún grundvellinum undan félagslegu og pólitísku veldi íslensku biskupanna.82 Hlutverk og starfsvettvangur lúterskra súperintendenta — en svo nefndust yfirmenn lúterskrar kirkju — voru skilgreind á allt annan hátt en hlutverk og starfsvettvangur kaþólskra forvera þeirra. Þeir töldust ekki vera „feður fátæklinganna“ í sama mæli og kaþólskir biskupar og höfðu ekki fjármuni til umfangsmikillar fátækraframfærslu, heldur voru þeir samkvæmt merkingu orðsins eftirlitsmenn. Jarðeignir, veðfé biskupsstólanna og efnahagsumsvif höfðu tryggt íslensku biskupunum pólitíska og efnahagslega forystu og náðu umsvif þeirra til Noregs. Á Íslandi var staða síðustu kaþólsku biskupanna á margan hátt sambærileg stöðu þýskra kirkjufursta.83 Í rauninni er kirkjuordinansían lagabálkur sem Kristján III setti einhliða í krafti hervalds síns, þrátt fyrir allt hjal í Forspjallsbréfi um að konungur hefði haft samráð við marga „meðhjálpara“, eins og komist er að orði. Ásamt Samkomulaginu (Recess) frá 1536 er kirkjuordinansían sú stjórnarskrá sem mótaði hið siðbreytta danska ríki um langa hríð.8485

Siðbreytingarmenn á meginlandinu fundu kaþólskri fátækraframfærslu ýmislegt til foráttu, m.a. að hún ýtti undir iðjuleysi og landeyðuhátt með því að halda fram gildi betlarans og lofsyngja fátæktina. Þá var mönnum tíðrætt um fjárdrátt og spillingu í fátækrastofnunum kirkjunnar. Siðbreytingarmenn töldu framlög vera næg en ekki væri gerður nægilegur greinarmunur á þeim sem raunverulega væru á nástrái og þeim sem gætu unnið. Það var siðbreytingarmönnum einnig þyrnir í augum að leikmönnum var meinað að taka þátt í stjórnun og rekstri líknarstofnana.86 Burðarásinn í hinni siðbreyttu fátækrahjálp voru borgaryfirvöld eins og glögglega kemur fram í kirkjuordinansíu Kristjáns III. Um tilhögun fátækraframfærslu segir í kirkjuordinansíunni:

Því skal hver biskup í sínu stifti með vorum lénsmönnum, próföstum, prédikurum og ráðinu í hverjum kaupstað láta setja eina almenniliga ölmusukistu fyrir þá fátæku í hverri að safnast megi allar þær ölmusur, sem kristið fólk gefur í Guðs nafni, hvert það eru testamentisgjafir eða prestastefnupeningar eða samkomudagspeningar, selskaps eður gildispeningar, sálugjafir og allt jarðargóss, sem fátækum hefur verið gefið.87

Þá skyldi góss sem enginn eigandi væri að ganga til fátækra. Predikarar skyldu áminna fólk um ölmusugæði við fátæka og láta af hendi rakna „fé, sem þeir plöguðu að gefa í forðum tíð af góðum gangi en í rangri og villtri meiningu fyrir messur og munkatíðir, fyrir aflátsbréf og pílagrímsferðir og fyrir sálum framliðinna og fyrir margan annan þvílíkan villulærdóm“.88 Þá var súperintendentinum uppálagt í samráði við lénsmanninn, prófastinn og prestana að fá til „nokkra dygðuga dánumenn“ sem vera skyldu „fjárhaldsmenn eður forstjórar og þjónarar þeirra fátæku“.89 Sérstakur kafli í kirkjuordinansíunni var helgaður spítölum en bygging og rekstur þeirra var helst úræðið til þess að bæta kjör fátæklinga. Í upphafi kaflans er lýst yfir þeim vilja konungs að eignir þær sem lagðar höfðu verið til uppeldis fátækum mönnum verði aftur til þeirra lagðar. Bendir þessi setning til að óráðvandir menn hafi sölsað undir sig slíkar eignir í Danmörku meðan á innanlandsstyrjöldinni stóð. Kveðið er á um nauðsyn þess að ráða til slíkra stofnana góða forstjórnarmenn sem „safni rentu og gjöri reikningsskap“. Skyldu þjónustumenn spítalans taka laun úr fyrrnefndri ölmusukistu. Eftirlit með rekstrinum hafði sóknarprestur með höndum. Í einni málsgreininni er útbúnaði spítala lýst:

Þá skal og kostgjæfilega vandast að bæði herbergið sjálft, sængurklæðin og borðbúnaðurinn sem föt og diskar og allt annað hvað sem þar skal með höndum hafast, veitist þeim sjúku hverjum fyrir sig sér í lagi eftir þeirra ýmislegum krankleika, sérdeilis þar sem menn uggir, að sjúkdómum muni svo varið vera, að hver fái hann af öðrum svo sá sami krankleiki megi ekki magnast og komast á marga af fárra umgengni. En læknarnir í kaupstöðum skulu leggja sig sem best til að lækna og græða þá enu sjúku, sem í nokkurn máta eru læknandi, svo sem þá, sem kreinkjast af sárasótt. Og fyrir þetta erfiði skulu læknarnir taka sína hýru og laun.90

Þegar litið er til þess sem sagt var hér á undan um tilhögun á fátækraframfærslu og aðhlynningu þeirra sem sjúkir voru og vanfærir í íslensku þjóðfélagi þá er hér um framúrstefnulega lagagrein að ræða sem ekki var auðvelt að hrinda í framkvæmd hérlendis. Kirkjuskipan Kristjáns III miðaðist við borgarsamfélög sem voru í örri þróun á meginlandinu og þar sem peningar voru að verða algengur gjaldmiðill. Þessi tilhögun átti því afar illa við á Íslandi þar sem þéttbýlismyndun var skammt á veg komin og slegin mynt var fáséð.91 Forystumenn landsins hafa þó reynt að fara eftir hinum nýju lagaboðum og lögðu til í svonefndri Bessastaðasamþykkt frá árinu 1555 að stofna fjóra fátækraspítala, einn í hverjum landsfjórðungi, en heldur dræmar undirtektir hjá hinni konunglegu stjórnsýslu. Árið 1556 barst bréf sem eftirfarandi klausa er úr: „Tykkis Kongel. Majest. godt være, at der ingen Hospitaler skal stigtes paa Island, meden at de Fattige drager omkring Landet, og söger efter deres Underholdning hvor de bedst kunde…“92 Af þessum kaldranalegu orðum má ráða að dönskum yfirvöldum hafi þótt fátækramál í það góðu horfi hérlendis að ekki þótti ástæða til þess að hrinda ákvæðum kirkjuordinansíunnar í framkvæmd, enda kostaði bygging og rekstur fátækraspítala fé sem stjórnvöld voru ekki tilbúin til þess að verja til félagsmála, enda voru önnur mál, eins og t.d. dómsmál, framar í forgangsröðinni. Íslensk bændaheimili voru því þær stofnanir sem báru hitann og þungann af fátækraframfærslunni eftir siðbreytingu og höfðu hana með höndum allt fram á 20. öld.

Bréf tólf presta í Hólabiskupsdæmi sýnir að vandræðaástandið skapaðist á Hólum þegar í embættistíð Ólafs Rögnvaldssonar (1552–1569) þar sem fátæklingar flykktust í harðindum sem gengu yfir árið 1557 til Hóla í þeirri von að þar væri einhverja hjálp að hafa:

Er það fyrir norðan í hans stikti svodan stór nauð og harðindi, bæði til sjós og lands, að fólki liggur við dauða af hungri og bjargleysi svo peningurinn deyr af frosti og snjófum, en fátækir menn deyja af fatleysi, svo að hann [Ólafur] kann varla að halda allt stikti með makt.93

Leggja prestarnir til að súperintendent fái að halda tíundum „og skikka þeim og útdeila eftir gömlum vana og landsins nauðþurft“. En þegar hér var komið sögu var biskupstíundin lögð undir konung og litla eða enga hjálp að hafa á biskupsstólunum, jafnvel þó súperintendentinn og samverkamenn hans væru allir af vilja gerðir. Þessi heimild sýnir að ný vídd hafði bæst inn í íslenskan veruleika, sem var algjör vanmáttur oddvita kirkjunnar að lina bráða hungursneyð, enda var efnahagskerfi kirkjunnar og þar með hið

lagalega stoðkerfi brostið. Frá síðari hluta 16. aldar eru til fjölmargir dómar, dæmdir af sýslumönnum, sem bera þess glöggt vitni að fjöldi fátæklinga hafi borið bændur og veraldleg yfirvöld ofurliði.94

Niðurstöður

Fátækraframfærslan hafði þróast hérlendis í fjögur til fimm hundruð ár áður en Kristján III Danakonungur gerði umskipti á siðum hérlendis. Framfærsluskylda grundvallaðist samkvæmt lögum á ættinni, en framfærslan var í höndum þriggja aðila: bændaheimila, hreppa og kirkjulegra stofnana. Aðaluppistaða hennar var fátækratíundin sem útdeilt var samkvæmt vissum reglum á bændaheimilum í formi matar, klæðnaðar og húsaskjóls. Þeir fátæklingar sem röltu rétt boðleið milli bæja í sinni sveit, átu út sinn deildarverð og nýttu sér húsnæði sem þeim stóð lögum samkvæmt til boða. Ef menn voru ekki þeim mun meira aðframkomnir gátu þeir kannski unnið dagsverk á bæjunum eða hægt var að nýta þá til sjúkraliðs eða annarra snúninga. Erfiðara var hlutskipti langlegusjúklinga sem menn hafa sjálfsagt reynt eftir mætti að ýta frá sér.

Heimildir um fátækraframfærslu á biskupsstólunum, útibúum þeirra, kirkjustöðum og kristfjárjörðum, sýna að kaþólska kirkjan hérlendis myndaði mikilsvert stoðkerfi við fátækraframfærslu hreppa og bændaheimila, enda voru kirkjulegar stofnanir öflugasta driffjöðurin í efnahagslífi þjóðarinnar og kirkjunnar fólk var skuldbundið líknarboðum ritningarinnar. Kirkjugóss var ekki einkaeign, heldur taldist arfleifð fátæklinga. Vegna sameiginlegra markmiða hafa samvinna og samráð kirkjunnar manna verið eðlileg og sjálfsögð. Tökuskeiðið í hagfræði, „synergism“, sem samkvæmt hljóðan Ensks-íslenskrar orðabókar merkir „samvirkni þannig að heildaráhrifin verða meiri en samanlögð áhrif hinna einstöku þátta“, nær yfir þetta fyrirbæri. Vegna þekkingar biskupa, ábóta, ráðsmanna og annarra kirkjunnar manna í ábyrgðarstöðum á innviðum hins kirkjulega hagkerfis hefur mátt koma við hagræðingu og dreifa

efnahagslegu álagi, t.d. í tímabundnum eða staðbundnum hallæri. Einnig höfðu biskupsstólar og útibú þeirra tök á að leysa brýnan félagslegan vanda, eins og t.d. að taka við langveiku fólki sem enginn vildi eða réð við að annast. Möguleikar á slíkri hjálp tákna aukin lífsgæði fyrir allt samfélagið.95 Það er einnig fljótara að rétta úr kútnum eftir áföll ef samvirkt kerfi er fyrir hendi. Eftir því sem kirkjulegar stofnanir efldust fjárhagslega, þeim mun betur virkaði kerfið. Harðæri og drepsóttir hafa hins vegar alltaf sett strik í reikninginn.

Við siðbreytingu og þá stjórnskipunarlegu breytingu sem hún hafði í för með sér beið fátækraframfærslan mikið afhroð. Kirkjuordinansían frá 1537 gjörbreytti innviðum íslensku kirkjunnar og þar með ríkisvaldsins á Íslandi. Við valdatöku Kristjáns III þokaðist Danaveldi í átt til miðstýrðs einveldis og fylgdi þannig pólitískri þróun í Þýskalandi en þar í landi voru landsfurstar (Territorialfürsten) sem óðast að koma sér upp nútímalegu ríkisvaldi með miðstýrðri stjórnsýslu, dómsvaldi og her. Borgarsamfélög voru í örri þróun og kröfðust annarra úrlausna í hinum ýmsu samfélagsmálum en bændasamfélag miðalda. Siðbreytingin er að einhverju leyti svar við þessari þróun. Kirkjuordinansíur hinna ýmsu borga í Þýskalandi bera vott um að siðbreytingarmenn leituðu nýrra leiða í félagsmálum og borgir og skattgreiðendur þar komu til skjalanna sem framfærsluaðilar en kirkjunni var ýtt út úr fátækraframfærslunni. Skyldi hún einskorða sig við boðun fagnaðarerindisins. Þessi nútímalegu sjónarmið og verkaskipting komu býsna flatt upp á Íslendinga sem bjuggu við lénsskipulag, jarðeignaveldi og athafnasama kirkjustjórn miðaldakirkjunnar, ekki hvað síst í félagsmálum.

Kirkjuordinansían frá 1537 gerir hvorki ráð fyrir efnahagsumsvifum né fátækraframfærslu á vegum kirkjunnar, heldur áttu veraldlegir aðilar að sinna hvorutveggja. Samvirkni sú sem talað er um

hér að framan er í eðli sínu viðkvæm og afar fljótlegt er að leggja hana í rúst, einkum ef efnahagslegum grundvelli er raskað og stofnanir og embætti sem báru uppi félagsmálin eru lögð niður. Ný opinber hugmyndafræði sem braut í bága við hefðbundin viðhorf til fátæktar hefur tæplega bætt ástandið; hún hefur ýtt undir aðsjálni nirflanna, en vandi hinna fátæku og þeirra sem vildu bæta úr hörmungunum magnaðist að sama skapi. Þróun af þessu tagi hefur sín eigindlegu vaxtaröfl sem eykur mjög á fátækt og félagslega eymd samfélagsins. Félagsauðurinn skertist og almenn samstaða minnkaði.96

Ábúnaður fátækra er jafnan dágóður mælikvarði á efnahagsástand í samfélaginu. Hinir fjölmörgu dómar um málefni förufólks á áratugunum eftir siðbreytingu bera þess vitni að fátækraframfærslan hefur vaxið mönnum yfir höfuð þegar stoðkerfi kirkjunnar brast í þessum málum og hreppar og bændaheimilin í landinu urðu að axla þessar byrðar við gjörbreyttar aðstæður í efnahags- og verslunarmálum. Þar sem ekki tókst að skjóta neinum nýjum stoðum undir efnahag landsmanna og þróa nýja sambýlishætti og atvinnuvegi var jarðeignaveldið í stórum dráttum við lýði allt fram á 20. öld. Í stökum dómum er ákaf­t vitnað í ritningargreinar sem túlka má sem aukna kunnáttu í Biblíunni. En slík kunnátta varð ekki í takt við og var þess langt að bíða að menntun grundvallaði velferð íslendinga. Einungis lítill hluti skatta rann aftur inn í íslenskt félagskerfi í formi fátækratíundar en versnandi árferði, óblíð verslunarkjör og lítil framleiðni atvinnuveganna mögnuðu enn frekar upp fátæktardrauginn sem tröllreið íslensku samfélagi allt fram á 20. öld.97 Við siðbreytingu fengu Íslendingar greiðari aðgang að Biblíunni og gátu kynnt sér hinn fræðilega grundvöll fyrir kenningum kirkjunnar. Á sama tíma brast hinn efnahagslegi grundvöllur þess að framfylgja líknarboðskapnum. Það má með nokkrum rétti segja að landsmönnum hafi verið gert að skipta á „orthopraxis“ fyrir „orthodoxíu.“

Heimildaskrá

Óprentaðar heimildir

Þjóðskjalasafn Íslands, ÞÍ

Jarðabækur klaustranna 1637. Leyndarskjalasafn, suppl. II, 44, 45, 46, 48, 96.

Prentaðar heimildir

Agnes S. Arnórsdóttir, Konur og vígamenn. Staða kynjanna á 12. og 13. öld. Sagnfræðirannsóknir 12. Ritstjóri Gunnar Karlsson (Reykjavík, 1995).

Althoff, Gerd, Verwandte, Freunde und Getreue. Zum politischen Stellenwert der Gruppenbildungen im früheren Mittelalter (Darmstadt, 1990).

Althoff, Gerd, Hans-Werner Goetz og Ernst Schubert, Menschen im Schatten der Kathedrale. Neuigkeiten aus dem Mittelalter (Darmstadt, 1998).

Alþingisbækur Íslands I–XVI (Reykjavík, 1922–1988).

Bazelmans, J., „Gifts and ‘Gefolgschaft’“, Reallexikon der germanischen Altertumskunde 11 (Berlin, 1998), bls. 468–470.

S. Benedikti, Regula Monachorum. Ritstjóri B. Linderbauer (Metten, 1922).

„Biskop Arnes kristenret“, Norges gamle love indtil 1387 V. Ritstjórar Gustav Storm o.fl. (Kristjaníu, 1895), bls. 16–56.

Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi I–II (Kaupmannahöfn, 1858–1878).

Björn Lárusson, The Old Icelandic Land Registers (Lundi, 1967).

DI = Diplomatarium Islandicum. Íslenzkt fornbréfasafn, sem hefir inni að halda bréf og gjörninga, dóma og máldaga og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn I–XVI (Kaupmannahöfn og Reykjavík, 1857–1970).

Diplomatarium Norvegicum. Oldbreve II. Ritstjórar Chr. C. A. Lange og Carl R. Unger (Kristjaníu, 1851).

Einar Hafliðason, „Lárentíus saga biskups“, Biskupa sögur III. Íslenzk fornrit XVII. Ritstjóri Guðrún Ása Grímsdóttir (Reykjavík, 1998), bls. 213–441.

Fischer, Wolfram, Armut in der Geschichte. Erscheinungsformen und Lösungsversuche der „Sozialen Frage“ in Europa seit dem Mittelalter (Göttingen, 1982).

Geremek, Bronislaw, Geschichte der Armut. Elend und Barmherzigkeit in Europa (München, 1988).

Die Geschichte des Christentums VI. Die Zeit der Zerreißproben (1274–1449). Ritstjórar Norbert Brox o.fl. (Freiburg, 1991).

Gísli Ágúst Gunnlaugsson, „Löggjöf um fátækraframfærslu og stjórn fátækramála á 18. öld“, Saga XXI (1983), bls. 39–72.

— Ómagar og utangarðsfólk. Fátækramál Reykjavíkur 1786–1907. Safn til sögu Reykjavíkur 5 (Reykjavík, 1982).

— „’Þraut er að vera þurfamaður …’. Um þurfamenn og fátækt á Íslandi í lok síðustu aldar og í upphafi þessarar aldar“, Saga og samfélag. Þættir úr félags­sögu 19. og 20. aldar (Reykjavík, 1997), bls. 130–143.

Grágás. Lagasafn íslenska þjóðveldisins. Ritstjórar Gunnar Karlsson, Kristján Sveinsson og Mörður Árnason (Reykjavík, 1997).

Hielle, Ingrid, „Alte Seefahrer und solidarische Bürger. ‘Haus Seefahrt’ ist eine der ältesten sozialen Stiftungen der Welt“, Frankfurter Allgemeine Zeitung 19. des. 1998, nr. 295, bls. 15.

„Hungurvaka“, Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi I (Kaupmannahöfn, 1858), bls. 57–86.

Íslensk hómilíubók. Fornar stólræður. Ritstjórar Sigurbjörn Einarsson o.fl. (Reykjavík, 1993).

„Jarteinir úr sögu Þorláks biskups hinni ýngstu“, Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi I (Kaupmannahöfn, 1858), bls. 375–391.

Jón Gizurarson, „Ritgjörð“, Safn til sögu Íslands og íslenzkra bókmenta I (Kaupmannahöfn, 1856), bls. 655–701.

Jón Jóhannesson, Íslendinga saga II (Reykjavík, 1958).

Jónsbók. Ritstjóri Ólafur Halldórsson (Kaupmannahöfn, 1904; Óðinsvéum, 1970).

„Jóns biskups saga, hin elzta“, Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi I (Kaupmannahöfn, 1858), bls. 149–202.

Kristni á Íslandi I–IV. Ritstjóri Hjalti Hugason (Reykjavík, 2000).

Lofink, Norbert, „Armut in den Gesetzen des Alten Orients und der Bibel“, Stuttgarter biblische Aufsatzbände 16 (Stuttgart, 1993), bls. 239–259.

Loftur Guttormsson, „Var sögu íslensku klaustranna lokið með siðskiptunum?“ Lófsanir. Rit Vestur-Skaftfellinga 7 (1999), bls. 158–175.

Lovsamling for Island I–XXI. Aðalritstjórar Oddgeir Stephensen og Jón Sigurðsson (Kaupmannahöfn, 1853–1889).

„Mágusannáll“, Islanske Annaler indtil 1578. Ritstjóri Gustav Storm (Kristjaníu, 1888; endurprentuð í Osló, 1977).

Magnús Már Lárusson, „Jordejendom“, Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder fra vikingetid til reformationstid VII (Kaupmannahöfn, 1962), d. 671–677.

Mollat, Michel, Die Armen im Mittelalter (München, 1987).

Njáls saga, Íslendinga sögur XI (Reykjavík, 1953).

Páll Eggert Ólason, Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi I–IV (Reykjavík, 1919–1926).

Piper, Kurt, „Kirkja Hamborgarmanna í Hafnarfirði“, Árbók Hins íslenzka fornleifafélags (1969), bls. 126–130.

Ragnheiður Mósesdóttir, „Bessastaðabók og varðveisla Viðeyjarklaustursskjala“, Saga XXXIV (1996), bls. 219–254.

„Saga Guðmundar Arasonar Hóla-biskups, hin elzta“, Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi I (Kaupmannahöfn, 1858), bls. 407–618.

„Saga Þorláks biskups hin elzta“, Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi I (Kaupmannahöfn, 1858), bls. 89–124.

Sigrún Gunnarsdóttir, „Ráðstefna um lýðheilsu. Samræming er forgangsmál“, Morgunblaðið 17. apríl 2002, bls. 8.

Stenbæk, Jörgen, „Den danske kirkeordinans af 1537/39 — teologi og funktion“, Reformationen i Norden. Kontinuitet och förnyelse. Ritstjóri Carl-Gustaf Andrén (Lundi, 1973), bls. 130–155.

Thomas von Aquin, Summe der Theologie I–III. Ritstjóri Joseph Bernhart (Stuttgart, 1938).

Tryggvi Þórhallsson, „Ómagahald, matgjafir o.fl.“, Skírnir 110 (1936), bls. 123–132.

Vilborg Auður Ísleifsdóttir, „Siðbót eða bylting? Nokkur orð um siðbreytinguna og kirkjuordinanzíuna frá 1537“, Sagnir. Tímarit um sögulegt efni 17 (1996), bls. 66–71.

— Siðbreytingin á Íslandi 1537–1565. Byltingin að ofan (Reykjavík, 1997).

[Þórður Jónsson í Hítardal,] „Æfisaga og ættbálkur Jóns biskups og barna hans. Historian af biskup Jóni Arasyni á Hólum og um hans ættfólk, niðja og tengdamenn“, Biskupa sögur gefnar út af Hinu íslenzka bókmentafélagi II (Kaupmannahöfn, 1878), bls. 338–404.

Summary

PAUPERS AND VAGRANTS

Poor relief in the late Middle Ages and its collapse

This article examines how medieval Icelanders arranged poor relief. The legal basis for such is investigated, as well as Christian traditions in this regard, taxation rules and methods of allocating the resources which were available for the purpose. It also discusses those institutions of medieval society, such as the episcopal sees, monasteries, farm endowments for poor relief, local districts, families/clans and farm households, which were involved in supporting paupers. It demonstrates that the medieval church formed an important support system for the society’s worldly institutions. It is hypothesised that the combined synergies of these institutions was part of the reason why Icelandic medieval society was relatively quick to recover from natural disasters and climatic adversity.

The Reformation (1541–1550), which originated in the constitutional development within the Holy Roman Empire — and had little to do with Icelandic medieval reality — brought a complete paradigm shift in the administrative, economic and social systems in Iceland. The Church Ordinance of 1537 is a constitutional document, intended to adapt the society to urban society, which did not exist in Iceland. It succeeded in destroying the social institutions of medieval society, but the Danish monarchy lacked the capacity, financing and will to develop a new social infrastructure which could look after poor relief in a satisfactory manner over the longer term. This is one of the principal reasons for the persistence of poverty in Iceland.